|
Afþreyingar og leitargaurar
|
01.11.2007 06:45:50 / drummer
Jæææja hvað segiði, á maður eitthvað að halda þessari síðu við eða bara leggja árar í bát..? Er búinn að vera einstaklega latur að blogga undanfarið, finnst eitthvað bara svo useless, nenni ekki að vera að auglýsa síðuna upp aftur, en það hefur samt verið talsvert af liði að biðja mig um að "byrja aftur" þannig að spurning hvort maður fari að virkja þetta kvikindi aftur.. So all in favor say Aye....
»
11.09.2007 09:03:07 / drummer
Sælt veri fólkið. Mikið rosalega var nú gaman á laugardaginn, algjör snilldardagur. Byrjuðum daginn snemma heima hjá mér, en við strákarnir í Pumasveitinni vorum "leigðir" til þess að mæta og styðja Víðismenn í úrslitaleiknum þeirra gegn Gróttu í úrslitum 3.deildar í Njarðvík, og við fengum 2 kassa af bjór fyrir það þannig að maður tók því hehe. Studdum þá til 2-0 sigurs og menn sáttir. Þá var ferðinni heitið á Ölver, en þar var upphitun fyrir stórleik 'Islands og Spánverja. Við komum þarna um hálfsex og mættum inn með látum og var alveg hörkustemmning þarna á staðnum. 'A leiðinni á völlinn kom svo alveg þessi rosalega úrkoma, og allir alveg hundblautir þegar skrúðgangan kom loks á völlinn. En við vorum fljótir að þorna, enda í alveg dúndrandi stemmningu í stúkunni og allir syngjandi og dansandi, og Tólfan stuðningsmannabatterí landsliðsins stóð heldur betur fyrir sínu. 
Þetta var einn af skemmtilegri leikjum sem ég hef farið á, og nokkuð ljóst að þessi stemmning sem við buðum uppá í þessum leik á heldur betur uppá pallborðið hjá landanum, og vonandi er þetta það sem koma skal. Hvet ALLA til þess að versla sér miða í I hólf fyrir leikinn gegn Norður 'Irum núna á miðvikudagskvöldið! Upphitun á Ölver hefst kl 16 en leikurinn kl 18. Soldið vondur tími, en við tökum því bara.. ´AFRAM ÍSLAND! Fyrir ykkur sem eru miklir Nágranna aðdáendur og viljið EKKI vita hvað mun gerast í framtíðinni í Grönnum mæli ég með því að þið hoppið yfir næsta kafla í þessari færslu,, en fyrir ykkur sem eruð að deyja úr forvitni,, endilega lesið áfram hehe Bibba vinkona mín er búin að vera að horfa á þættina á netinu og er komin ca 10-12 mánuði á undan okkur. En það sem gerist í þættinum í dag þriðjudag kemur hérna strax að neðan, og svo förum við lengra inní framtíðina. En eins og ég segi, ef þið viljið ekki vita þetta þá hoppið þið bara yfir þessa umfjöllun, en ef ekki þá bara lesið þið og njótið  (Hér erum við stödd í dag)Sky verður ólétt og heldur fyrst að dylan sé pabbinn en svo stenst það ekki því hún átti í one night stand við scott. En svo gerði Karl mistök og hafði rangt fyrir sér að Scott væri pabbinn heldur var það Dylan. Og Karl þurfti að hætta læknastörfum.
*Max á aðra konu og börn og stingur af til að hitta þau og Janae og Elle finna hann og já..
*Paul heldur framhjá Lyn með rosettu (daginn fyrir brúðkaup þeirra)
*Boyd fer í ferðalag og hittir stelpu og heldur framhjá 2svar, svo kemst Janae að því og hættir með honum og Boyd byrjar með hinni stelpunni
*Scott deyr eftir að hafa bjargað dóttur Sky frá hvítblæði (held ég)
*Dylan fer með pabba sínum í burtu eftir jarðaför Scotts
*Stephanie og Toadfish byrja saman
*Susan og Karl fóru til Parísar og Karl bað hana um að giftast sér þar og þau giftu sig og þá kom Izzie ólétt í brúðkaupið og þá komst Susan að því að Karl væri faðir barnsins. Izzie býr í París og er með einhverri frægri fótboltastjörnu.
*Pepper verður rænt og haldið í gíslingu af móðir fyrrverandi kærasta hennar sem ásakar hana fyrir að hafa eytt fóstri sem hún missti.
*Sky lendir í fangelsi fyrir morð en Boyd bjargar henni (löng saga)
*Carmella og Oliver byrja saman en þá verður Oliver hrifinn af Elle og Carmella dömpar honum og byrjar að dúlla sér með Ringo bróðir Frazers 
*Fyrrverandi kærasta Ned's kemur til hans og segir honum að hann eigi 8 ára strák og svo skilur hún strákinn eftir hjá Ned, og svo byrjar Ned með Janae.
*Janelle og Sgnt. Stiger (löggan og faðir pepper) gifta sig.
*Blinda stelpan Anne kemur aftur í þættina og Bree fær að kynnast alvöru foreldrum sínum. Og þá ákveður Janelle,Bree og Stiger að flytja í sama bæ og foreldrar Anne svo þau gætu verið nánari.
*Camilla er ólétt eftir Oliver
*Oliver finnur móðir sína
*Það kemur nýtt fólk í þættina bróðir Ned (ekki Stuart) og konan hans og dóttir þeirra.
*Sky og dóttir hennar heimsækir vinkonu sína í canada (lessuna sem var einu sinni)
*Boyd fer í ferðalag
*Frazer og Rosetta (systir Camillu) giftast og svo lenda allir gestirnir í bílslysi eftir brúðkaupið (damdamdaramm)
*Christine barnsmóðir Neds kemur og ætlar að taka Mickey og stinga af með hann. Svo lýgur hún að Janae að Ned sé ennþá hrifin af henni
*Steph verður kosinn bæjarstjóri
*Elle hættir með oliver
*Pepper greinist með krabbamein (djöööö marrr) *Paul Robinson fer að muna allt sem hann hafði gert áður en hann missti minnir, og svo kemur í ljós að hann kveikti í barnum hans Lou. *Rosetta (Rosie) og Toadie fara að vinna saman sem lögfræðingar og opna sem þau kalla Rebecchi-Cammeniti. Hérna eru svo nokkur dauðsföll í Grönnum, djöfull man maður eftir þessu... http://youtube.com/watch?v=x19EkcWmeLA Og hérna svo yfirferð yfir þau 20 ár sem voru liðin þegar þessi þáttur fór í loftið. Annalise kom þarna með gott comeback (heita heita) http://youtube.com/watch?v=iI39s-smXTc&mode=related&search= Castið frá 1989 hérna á myndinni hehe, damn those faces bring back memory. En þess má til gamans geta að fyrsti þátturinn á 'Islandi var sýndur 1.maí 1990 kl 16:45, man það eins og hafi gerst í gær. Djöfs lúði er maður haha.... 
Svo er ein mynd sem ég bara verð að mæla með fyrir ykkur til að sjá, en hún heitir Zeitgeizt, og er allrosaleg. Þetta er heimildarmynd sem fjallar um rosalega spillingu og samsæri sem á sér stað í heiminum í dag og teygir anga sína alveg löngu fyrir Krist. Þetta er þvílíkur eye-opener þess mynd, og ég ætla að fjalla betur um hana í næstu færslu. En ég get alveg sagt ykkur það að það er alvarlega verið að slá ryki í augun á fólki þarna úti og þið þurfuð ÖLL að sjá þessa mynd! En ég ætla að skella mér í gymmið núna og fara að taka á því, vill þakka Grétu og Lilju vinkonum mínum fyrir að beila á keppninni okkar,, ég verð þá bara að taka þetta 3ja mánaða átak by myself.. Og já, það er 11.sept í dag, ENNÞÁ betri ástæða til þess að sjá þessa mynd sem ég nefndi hér að ofan! Kem með slóðina á myndina von bráðar. Endilega commentið aight ! 
»
31.08.2007 06:10:29 / drummer
Jájájá, þá er loksins komið að því, bloggsíðan mín er hér með
opnuð, back in buisness baby !!
'Eg er eiginlega búinn að vera með hana í dvala núna síðan í
byrjun sumars, en ég er búinn að vera netlaus helvíti lengi, en nú
loksins loksins er netið dottið aftur inn til mín og því getur
maður verið virkur aftur á síðunni, og á netinu, úje !
Það hefur nú ansi margt drifið á mína daga síðan ég ritaði hérna
eitthvað af viti og margt búið að vera í gangi, og hellingur
framundan. Sumarið mitt fór mestmegnis í vinnu, djamm og fótbolta,
og auðvitað slatta af tani hehe, enda búið að vera geggjað veður í
allt sumar. 'Oli Geir félagi minn plataði mig út í það koma og
gerast flokkstjóri yfir krökkunum í Vinnuskólanum, og ég lét slag
standa og tékkaði á því í sumar. Svo fór það nú svo að hann hætti
blessaður, en ég var allt sumarið með sitthvorn hópinn, sem sagt 2
tímabil 4 vikur hvort, og kynntist þarna fullt af hressum og
skemmtilegum krökkum og átti bara helvíti hressandi sumar. Kynntist
einnig nokkrum hressum spöðum úr Njarðvík sem voru einnig
flokkstjórar með mér, og er það alveg ljóst að ég sé ekkert eftir
því að hafa unnið þarna í sumar.
Við vorum líka svo miklir kóngar að aðra hverja viku þegar við
fengum útborgað að þá skelltum við okkur allir flokkstjórarnir út
að borða á föstudögum og fengum okkur dýrindis humar hérna í
Keflavík a Kaffi Duus og Ránni, og skelltum okkur svo í Bláa Lónið
and lived like kings hehe. Það er nottla svo helvíti vel borgað i
bæjarvinnunni, *hóst* en við leyfðum okkur þetta þó, í góóðum
gír.

Fótboltinn í sumar var helvíti góður framan af hjá
Keflavíkurliðinu, en svo hefur heldur fjarað undan fæti, en við
strákarnir í Pumasveitinni vorum nokkuð hressir framan af og unnum
meðal annars til verðlauna sem besta stuðningsmannakrúið fyrir 1-6
umferð, og hlutum að launum eitthvað um 150 þús kall sem rennur til
yngri flokkana.. (bíddu, enginn bjórpeningur ??) en það er allt
gott og blessað. Síðan höfum við strákarnir verið alveg helling í
bolta sjálfir í sumar og verið að spila í öllum mögulegum veðrum,
og höfum bara fjandi gaman af..!
Maður var helvíti duglegur i sumar við að ferðast, og fara á
hina og þessa staði og kynnast helling af nýju liði og er það
auðvitað bara gaman. Við fórum meðal annars á Hamingjudaga í
Hólmavík, Akranesdótið þarna -man ekki alveg nafnið- en ég, Dabbi
Bítill og Atli trúbbi vorum að spila þarna á einum skemmtistað uppá
Skaga í sumar á þessari hátíð, einmitt daginn eftir frægan leik 'IA
og Keflavíkur í sumar hehe. Það var fjandi gaman og enduðum við
allir hauslausir,, enn ekki hvað! 
Djammaði mikið í Eyjum -Gosalokahátíð-Þjóðhátið-Splashpartí-
Akureyri (Splashpartí-Versló-og fleiri djömm) Reykjavík, Grindavík,
Sandgerði, Garður, skelltum á djamm á vegum skólans á Laugarvatni
sem haldið var fyrir austan rétt hjá Bakkaflugvelli 5 mín frá
Eyjum, en það djamm kallast Bubba. Hressandi það.
Fórum slatta útá land í sumar og þetta var bara fjandi gaman.
'Eg fór reyndar ekkert í bústað come 2 think of it,, ætla að bæta
úr því fljótlega, bústaðardjamm/slökun er alveg málið !
Heyrðu ég ákvað það um daginn að prófa að safna skeggi í ca 2
vikur, en það hefur oft verið að spyrja mig af hverju ég prófi ekki
að safna skeggi, því ég er með svo dökka rót (ítölsku genin sko
hehe) og er svo fljótur að láta mér vaxa skegg, þannig að ég ákvað
að prófa það aðeins.
 
'Eg hef aðeins einu sinni látið bara allt flakka, en það
var þegar ég var á sjó einhverjar 2-3 vikur einu sinni, og ég man
þegar Sandra Karen my ex kom að ná í mig þá var hún alvarlega heit
og þvílíkt góð lykt af henni, en ég var eins og versti villimaður
og lyktaði eins og fiskikar, og ég man bara svipinn á henni ,og hún
var sko ekki aaalveg á því að hleypa mér inní bílinn til sín haha..
En núna þá snyrti ég bara aðeins skeggið svona á hliðunum og svona,
en lét samt bara allt flakka, en á þessum stutta tíma náði ég að
safna helvíti miklu, og kom það bara helvíti vel út að mér og
mörgum fannst. Auðvitað eru ekkert allir á sama máli, og sumar
stelpur vildu nú hafa mann frekar svona snyrtilegri hehe, en ég get
sagt ykkur það að hver veit nema maður verði búinn að raka sig og
verði flottur og sætur á því í kvöld í partýinu á Trix sem við erum
að halda,, það verður bara að koma í ljós 

'Eg er búinn að vera að djamma mikið með nokkrum hressum
vinkonum mínum í bænum,, þeim 'Irisi, Lilju, Gréta, Þóru, Hildi og
Bylgju, aka Wonderberries krúinu ásamt henni Töru beibí,, og höfum
við verið að gera ansi gott mót á mörgum stöðum bæjarins og á
Bíladögum á Akureyri og á Þjóðhátíð Eyjum, og er fjandi gaman af
þeim stelpum. Þær koma vonandi hérna á Ljósanótt og dilla bossanum
eins og þeim einum er lagið, úje !
 
Það hefur einmitt verið alveg hellingur að gerast í
klúbbasenunni í sumar og bara í ár og sér ekki í endann á því,, og
er það auðvitað bara hið allra besta mál. Um daginn var svo
haldin 'Arshátíð íslenskra plötusnúða þar sem öll senan og elítan
var samankomin á Nasa og var það kvöld gjörsamlega trubblað!
Eiga öll DJ crewin frábært hrós skilið fyrir þetta framtak, alveg
komið til að vera! Svo að má að sjálfsögðu
ekki gleyma GLOBAL GATHERING baby,, en við fórum þangað vel
myndarlegur hópur í sumar á vegum FlexMusic og var það í einu orði
sagt WICKED !!
'Eg er ennþá að vinna á útvarpsstöðinni Flass 104,5 og kann ég
fjandi vel við mig þar. 'Eg var einmitt að fá nýjan spons á þáttinn
minn, en það er skemmtistaðurinn Yello í Keflavík sem verður
bakhjarl minn, þannig að þið munið þá heyra á næstu dögum "Joey D
er í boði Yello allar helgar á Flass 104,5" En þátturinn minn er
alla laugardaga og sunnudaga frá 18-22. Getið alltaf bjallað í
kallinn í 5885500 ef ég get gert eitthvað sniðugt fyrir ykkur,, og
já, heimsklassa núðlueldun stendur til boða hehe
En mál málanna þessa helgina er að sjálfsögðu LJÓSANÓTT í
Reykjanesbæ, úúúújee! 'Arlegur viðburður sem er ekkert annað
en SNILLD og er gífurlegur spenningur í bæjarbúum fyrir
þessari helgi ! 'Eg var einmitt bara að koma heim áðan, en þá var
meðal annars hinn eini sanni Eyjólfur Kristjánsson á Trix, og þær
skvísur Margréir Eir, Heiða Idol og fleiri góðar með tónleika á
Yello sem seldist upp á, og hörkutónleikar niðri bæ þar sem
strákarnir í Sky Reports, Jet Black Joe og fleiri bönd stigu á
stokk, og var alveg hellingur af liði niðrí bæ. 'Eg endaði svo
kvöldið á Yello að dj-ast þar til að vera hálffimm fimm, og flottu
fimmtudagskvöldi lokið. 'A morgun/í dag föstudag ætlum svo
við 'Oli Geir að halda brjálað partí á Trix, og ætlum við
félagarnir meðal annars að gefa eitt stykki utanlandsferð hvorki
meira né minna! Eina sem þið þurfið er að gera að mæta á staðinn og
skemmta af ykkur rassgatið, og hver veit nema þið munið næla ykkur
í ferð hvert sem er í Evrópu,, ekki amalegt það..!
Það kostar lítinn 1000 kéll inn, og fylgir einn
íssskaldur með fyrir þá fyrstu. Flass 104,5 verða að gefa miða í
partíið í dag, þannig að fylgist vel með þar Getið
einnig tékkað á www.agent.is

Svo er bara dúndrandi dagskrá alla helgina á öllum stöðunum í
Keflavík, og það verður bara stanlaus gleði útum allan bæ og verður
bærinn heldur betur lifandi og eitthvað fyrir alla sem þið getið
tékkað á alla helgina,, þannig er nú bara
Ljósanótt..! Við ætlum að hittast öll saman á
morgun gamla góða Bláa Lóns staffið og taka eitt stykki partý á
þetta saman í Kef, þannig að það á eftir að verða helvíti fín
upphitun fyrir kvöldið hehe
Maður dettur svo loksins aftur í gymmið eftir sumarið og
get ég lofað ykkur því að kallinn á eftir að vera fjandi öflugur
þar, og stefni ég á að koma grimmur inní jólatörnina vel
fitt á því En ég ætla
að segja þetta gott í bili,, bloggsíðan mín er loks komin aftur í
gang, (Sanka is ALIVE) og mun ég vera duglegur að krota hérna inn á
næstunni. Setjið síðuna í favorites og verið
dugleg að kíkja á kallinn..! Eg vill svo fá fullt af
commentum, aiight
En ég sé ykkur vonandi sem langflest um helgina
í Keflavík, og ég hvet ALLA til þess að mæta
í partíið á Trix í kvöld,, það verður wicked!! 'Uje !

VELKOMIN Á LJÓSANÓTT
2007!
»
16.08.2007 17:22:13 / drummer
'Eg er núna búinn að vera að bíða eftir því að fá loksins loksins
netið heim til mín,, (MITT net, ekki stolen from my neighbours
hehe) en það virðist alltaf vera að frestast eitthvað, nú er
einhver bilun í símakassanum fyrir utan blabla.. En um
leið og það dettur inn, vonandi núna fyrir eða um helgina, þá kemur
sko ein SPIKFEIT færsla með öllu því helsta sem hefur verið að
gerast hjá mér, myndir og svaka stuð. Þannig að þið
skulið nú bara spenna beltin og enjoy the ride my good people
»
17.07.2007 23:33:57 / drummer
Jæja jæja jæja,, nú hlýt að fara að ná að drulla inn þessari
færslu sem ég er búinn að lofa hehe. Skulda einnig gras.is
pistil, er með alltof margar síður að skrifa inná,, plús öll
spjallborðin og allt þetta shit sem maður er að gera á netinu.
Þetta kemur núna í nótt eða á morgun,,, LOFA! 
»
12.07.2007 12:31:19 / drummer
Þá er málið nú bara einfalt,, mættu í brjálað partý með okkur í
tilefni opnunar á glænýrri heimasíðu skemmtistaðarins Trix í
Keflavík næstkomandi laugardagskvöld
! En svona hljómar auglýsingin inná
www.trix.is
"Næsti laugardagur á Trix verður rosalegur en þá ætlum við að fagna
þessari nýju heimasíðu okkar með promp og pragt. Við erum að tala
um að þeir DJ Joey D og Óli Geir og ætlum við að gefa ferð til
ÚTLANDA og þú mátt ráða hvert !!! Eina sem þú þarft að gera er að
mæta, skrifa nafn þitt á blað og við drögum svo út. Það verða
veitingar í boði fyrir gesti meðan byrgðir endast og allt verður
gert vitlaust !! Kíktu á tjúttið í Keflavík næsta laugardag og
fagnaðu nýrri heimasíðu með okkur. Trix.is - Þar sem fjörið er
!"
Mæli klárlega með þessu,, eins og segir í laginu góða,, "Gaman er
að koma í Keflavík, kvöldin þar þau eru engu
lík.." 'Uje !
»
04.06.2007 23:48:04 / drummer
Kem með eina væna færslu hérna fljótlega..
En vildi bara láta ykkur vita af því að ég held loksins uppá
afmælið mitt núna um helgina en ég átti afmæli 24.maí, og það
verður á laugardaginn á skemmtistaðnum Yello í Keflavík.
Gleðin hefst kl 21:30, og verða einhver skemmtiatriði og
massastemmning í gangi. 'Eg ætla nú ekki að hringja í hvern
einn og einasta, þannig að að ef þú ert vinur minn eða vinkona, eða
bara einfaldlega góður félagi, þá er þér að sjálfsögðu
boðið! Hlakka til að sjá ykkur öll,, þetta verður
guddsjitt ! 
Má svo bæta því við að Yello var að opna myndasíðu á
heimasíðunni sinni, www.yello.is og klikkið þar
á "efri hæð" og þá kemur þetta allt í ljós.
En takið frá næsta laugardag elskurnar,, DJ Stef er svo að spila
á Yello seinna um kvöldið, og Splashpartý á Trix, þannig að það
verður guddsjitt djamm í Keflavíkinni næsta laugardag 
»
30.05.2007 06:54:27 / drummer

Já hva haldiði, Drummerinn alltaf samur við sig... Var að detta
inn um dyrnar, er búinn að vera úti í nótt í körfu á einum besta
útivelli landsins, við Holtaskóla í Keflavík, alvöru völlur þar á
ferð. Heví gott að spila á þessum velli, sérútbúinn og helvíti
flottur völlur. Maður mætti þarna í rúman einn og hálfan tíma,
skaut alveg helling og tók hressilega á því. Var að horfa á
Cleveland-Detroit fyrr um kvöldið og fékk bara alveg óstjórnanlega
þrá til að fara útí körfu, og völlurinn ekki nema 2 mín frá
íbúðinni minni þannig að ég skellti mér bara út hehe. Fór einmitt
um daginn einnig með 2 félögum mínum og vorum úti til 6 um
morguninn hehe
Talandi um körfubolta, þá var ég að rifja upp í gærkvöldi hversu
gríðarlega fyndinn maður var sem krakki á körfuboltaleikjum. Mógðun
við leikmenn annarra liða og dómara, úff maður var heldur betur í
essinu sínu. Það var til dæmis alltaf klassískt gegn Val að
uppnefna Svala Björgvins sem þá spilaði með liðinu, en hann er eins
og margir vita mikill spekúlant og lýsir til dæmis leikjum á Sýn af
mikilli snilli. Þegar ég ætlaði að dissa Svala þá kallaði ég alltaf
inná; "Hey Svali,, pfff.. frekar vill ég kókomjólk!" úúúú maður var
harður ha, hehe. 'A móti Njarðvík var það þessi litli söngur
"Teitur er ekki heitur, því hann er svo rosa feitur" Teitur Örlygs,
einn fremsti leikmaður allra tíma á 'Islandi, algjör byssa og heví
slim. En eins og ég segi, maður var heldur betur frjór sem krakki
hehe. Svo var það einn dómarinn, hann Jón Otti, reynslumesti
dómarinn á sínum tíma, með grátt i vöngum en virkilega góður. Man
eftir einhverju atviki sem við krakkarnir vorum ekki sátt við, og
þá heyrðist hátt og snjallt í mínum; "Hey farðu nú að dæma eitthvað
af viti þarna gráhærða púðurdósin þín!" og krakkagengið sprakk,,
hlógu sig máttlausa,, og kallinn var heldur betur fyndni gaurinn
þarna sko. Já svona gæti maður lengi talið,, frekar ófyndið, en
svaka sniðugt þegar maður er krakki, og þó enginn heyri þetta nema
vinahópurinn þá þótti þetta svaka sniðugt 

Heyrðu Drummzi litli átti bara afmæli núna um daginn, 24.maí og
vill ég bara þakka öllum sem sendu mér hamingjuóskir á netinu, í
gegnum sms eða bara face to face kærlega fyrir, virkilega gaman.
Fór einmitt í bæinn á afmælisdaginn minn á leik hjá Kef gegn Blikum
sem fór 2-2. Hefði nú alveg viljað fá sigur í afmælisgjöf, en það
er víst ekki á allt kosið. Skellti mér svo með vinkonum mínum úr
bænum, þeim 'Irisi, Lilju, Grétu, Bylgju og Þóru á Sólon þar sem
við fengum okkur nokkra kalda og skemmtum okkur saman. Kom svo
fleira lið eins og Aron 'Olafs sem átti einmitt afmæli sama dag og
ég, Biggi og Víkiingur og fleiri góðir.

'
Eg ætla einmitt að halda uppá afmælið mitt núna þann 9.júni
loksins, en það er reyndar verið að biðja mig um að koma að spila á
Akureyri það kvöld, væri reyndar heví til í það,, en ég hélt ekk
uppá stórafmælið mitt í fyrra (25 ára) og því skulda ég eitt feitt
partý. Ætla að halda uppá það eins og áður segir 9.júní í Keflavík,
og vonast ég bara til að sjá sem flesta vini/vinkonur mína og
félaga, frá Suðurnesjum, Reykjavík og landsbyggðinni á svæðinu.
Upplýsi það endanlega mjög fljótlega hvar í Keflavík það verður,,
en þetta verður allavega guddsjitt kvöld, því get ég lofað 
Talandi um guddsjitt kvöld,, þá skelltum við okkur norður nokkur
saman síðustu helgi og héldum þar á Akureyri hressandi Playboy
partý. 'Eg og Kiddi Ghozt úr Flex krúinu spiluðum þar og var
heljarinnar stemmari á skemmtistaðnum 1929. Við vorum slatti af
liði saman úr Kef á einu hóteli þarna og héldum hressandi
eftirpartí sem stóð til eitthvað um hálftíu um morguninn. Aðrir
fóru fyrr inn í herbergi en aðrir,, af margvíslegum ástæðum sem
verður ekki farið í nánar hér.. hehe 
Damn svo núna 1.júni að mig minnir verður tekið í gangið nýja
reykingabannið,, og fagna ég því hressilega! Búinn að bíða lengi
eftir þessu, og verður gaman að sjá hvaða áhrif þetta hefur á
djammmenninguna, og hvort maður geti nú loksins skroppið út í einn
kaldan eða svo á fimmtudagskvöldi og ekki komið heim lyktandi eins
og motherfuckin öskubakki. Verður spennandi að sjá hvernig
staðirnir sjálfir ætli að bregðast við þessu, eða kannski frekar
gestirnir. Eins núna í Keflavík er verið að stytta opnunartíma
skemmtistaðanna, þannig að það verður forvitnilegt að sjá hvernig
þetta kemur allt saman út.

En ég er með bestu lausnina á þessu öllu saman krakkar mínir...
MÆTA FYRR NIÐRÍ BÆ OG HÆTTIÐ AÐ REYKJA! Ekki flóknara en það ! Skil
ekki þessa þörf fyrir því að mæta alltaf rúmlega 3 hálffjögur niðrí
bæ, og djamma svo til hádegis og vera í bullinu til þriðjudags að
jafna sig... Why ?? Bara byrja fyrr að djamma, grilla heima hjá
einhverjum uppúr 7 og taka nokkra drykkjuleiki á þetta og svona, og
skella sér svo niðrí bæ á milli 12-1, og djamma hressilega til 5,,
eitt gott eftirpartí til svona 7-8 og vakna svo bara sprækur uppúr
hádegi. Það er málið góðir gestir,, og fáið ykkur bara neftóbak eða
í vörina, og sleppið því að reykja,, þá eru allir sáttir ! 
Vill svo að lokum þakka strákunum í Plugg´d og Adda Exos fyrir
öflugt game á Nasa á sunnudagskvöldið í tilefni nýrrar heimsíðu frá
strákunum, www.pluggdcrew.com tékkið á
henni, hrikalega flott síða. Svo var einnig að koma út mixdiskur
frá þeim, fjandi eigulegur gripur það.

Sóóólin er komin,,, allir í Lóóónið,, úúújeee!
Ætla að skella mér í bæinn í dagi og hitta eitthvað hresst lið og
fá mér ís og eitthvað guddsjitt,, sé ykkur kannski þar babys
! Ciao í bili 
-Endilega commentið..
»
23.05.2007 03:41:18 / drummer
Yessör, það verður haldið massa Playboy partý á
skemmtistaðnum stóra 1929 á Akureyri núna á laugardagskvöldið, og
verður það heldur betur veglegt partý! Við ætlum að taka
roadtrip gírinn þetta svona í upphafi sumars og vera með rútuferð
til Akureyrar, og eins og menn muna sem fóru með okkur í
Splashpartýið norður síðast þá var brjálað stuð í þeirri
ferð, og þettta verður ekkert síðra.
Það verða þeir Dj Joey D (sem sagt ég hehe) 'Oli
Geir og Flexarinn ógurlegi Kiddi Ghozt sem sjáum um að halda
liðinu vel sveittu á gólfinu. Það er að detta inn
mjög fljótlega einhver helvíti góður pakkadíll á þetta allt
saman, en það er alveg ljóst að þetta verður
massadjamm!


'Eg á einmitt afmæli núna á fimmtudaginn, orðinn hundgamall
össs... Ætlaði að halda uppá það á laugardaginn, en ætla að
seinka því um ca 2 vikur. Og þá verður sko haldið massive
partý, og veglegur gestalisti 
Fylgist bara vel með á Flass 104,5 uppá
Playboy partíið þetta verður auglýst vel þar, og
einnig inná www.agent.is

Sumarið er tíminn, þegar Joey líður vel....! 
'Eg er svo að spila í afmæli hjá Aroni 'Olafs félaga mínum á
Prikinu á föstudagskvöldið, og verður bongótromman að sjálfsögðu
með í för þar. Svo tékkar maður á Pluggd og Exos á Nasa á
sunnudagskvöldið,, alveg hellingur að gerast um helgina..!

Heyrðu já svo er að koma hressandi viðtal við kallinn í Séð og
Heyrt núna á fimmtudaginn, akkurat á afmælisdaginn,, ekki amalegt
það hehe. Tékkið á því 
ps. Var að snúa illa uppá hnéð á mér í fótbolta rétt áðan, can
hardly walk.. Allir að vorkenna mér ógeðslega mikið..
Ef þú ert vinur/vinkona mín eða telur þig bara vera góðan
félaga, þá er þér boðið í afmælið mitt eftir ca 2 vikur,, just stay
tuned aiight..!
»
08.05.2007 12:25:45 / drummer

"Hvað er ferskt" kunnið þið að spyrja ykkur,, ég skal sko svara
því,, 'EG er ferskur! Shit, ákvað það bara í nótt að fara ekkert að
sofa hehe, datt út í einhverjar 10 mín yfir NBA leiknum í
nótt, og svo var ég bara svo hress í morgun að það tók því ekkert
að fara að sofa enda Wicked veður úti, þannig að minn skellti sér
bara í sund um leið og það opnaði, 06:45, og fór þar í
pottinn í chillið og nudd og svona, og skellti mér svo að rifja upp
gamla takta í sundinu og synti einhverja 1500-2000 metra, og bara
helvíti góður á því. Tók svo heví gufu og meira tan, og fór svo
uppúr rétt uppúr 9. Var að koma úr Brautanesti, rölti þangað áðan
og fékk mér gott í gogginn og er bara núna útá "sólpalli" heima í
geggjuðum gír, og búinn að opna mér kaldan,, en ekki hvað! 
Shit maður erum við að tala um að Drummerinn sé kominn í
sumarfíling,, það held ég nú! Nei vá samt hvað maður er orðinn
mikill belgur hahaha,, ég var nú bara varla að meika að halda niðri
í mér hlátrinum rétt áður en ég labbaði út í laugina.. Það er
spegill rétt við útganginn, og ég bara sagði upphátt,, "Joey,
WADDAFUCK!" og svo sprakk ég En
ég og Bjössi félagi minn vorum einmitt að gera æfingaplan í gær, nú
er þetta allt að fara á fullt, og stefnan er að vera kominn í
toppform, well allavega svona decent form fyrir Global Gathering og
Eyjar í sumar. Maður er bara svo fokkin heimskur að hafa ekki verið
löngu byrjaður og notað veturinn í það, því það er bara svo alltof
mikið að gleði framundan að maður á bara erfitt með að halda sig
frá bjórnum,, sjæse..

Svo er maður orðinn svo helvíti loðinn og fínn hehe, alveg 180
gráðu beygja frá því sem áður var,, massaður og skafinn yfir
í feitur og loðinn,, eða svona allt að því hehe. Kvíður nú
bara fyrir því að mæta aftur í gymmið, á eflaust eftir að vera eins
og kelling þarna fyrstu dagana hehe. Ef ég tek sem dæmi þá var
maður var allavega kominn í topp 160kg í bekknum og 200 og eitthvað
kg í hnébeygju, og án allrar steranotkunar takk fyrir! Enda
er ég stórlega á móti því, vill bara hafa þetta náttúrulegt, og ef
að menn nenna ekki að leggja nógu mikið á sig og vilja fara
shortcut í það að ná sér upp massa þá er það þeirra mál, en ég mun
allavega aldrei snerta stera. Þannig að það verður
forvitnilegt að sjá hversu lengi maður er að koma sér aftur í gang
eftir 2ja ára pásu.. úff...
Planið í sumar er að reyna að fara á allavega 3 staði, eða
semsagt þrjú event.. Global Gathering í lok júlí er auðvitað málið
númer 1 2 og 3 (www.globalgathering.co.uk) , svo fer maður beint
til Eyja vænti ég í stemmarann þar, og svo væri helvíti sterkur
leikur að negla sér út til Spánar eða einhverjar sólarstrandar í
algjört chill í 2 vikur svona til þess að slútta sumrinu. 'Eg held
að maður reyni að stefna á þetta, ætla bara að sjá til hvernig
peningastaðan verður,, en ég spila hjá Happdrætti Das og ég VEIT að
ég mun vinna, I will be rich Rich RICH hehehe

Það er nóg að gera í DJ bransanum, er núna um helgina að
ég fara aftur vestur, spilaði um daginn á dimission balli hjá
Menntaskólanum á 'Isafirði og var það haldið á stað sem heitir
Vaxon í Bolungarvík, og hann kom mér sko ansi skemmtilega á óvart
sá staður! Tekur eitthvað um 300 manns held ég, með flott dansgólf,
og helling af allskonar ljósum og reykvélum og myndaðist alveg
brjáluð stemmning þarna síðast, og ég og Biggi félagi minn gerðum
allt vitlaust og liðið þarna í heldur betur góðum
gír..!!

Þannig að eigandinn vildi fá mig aftur og við ætlum að halda
annað game þarna núna á föstudaginn næsta, einskonar próflokadjamm,
og má búast við fullu húsi og tuddastemmara. Meira um þetta inná
www.flass.net Svo eru allskonar
partí og afmæli framundan þannig að það er nóg að gera. Einnig er
það að frétta að ég er víst genginn til liðs við hina frábæru
trúbadora í Eddie Torres, þá Sidda og 'Ola, og en ég kom bara
"óvænt" hehe og spilaði með þeim á einhverju kosningadjammi í
Grindavík núna föstudaginn, mætti með bongótrommuna og við erum
bara að spá í að gerast tríó, enda small þetta mjög vel saman hjá
okkur og gaman að þeim piltum. Fékk þá einmitt í viðtal til mín
uppá Flass síðustu helgi og þeir tóku lagið í beinni.
Heyrðu dagskráin fyrir helgina er þá eftirfarandi: 'A
fimmtudaginn munum við strákarnir í Pumasveitinni hittast heima hjá
mér í köldum og fara að semja ný lög fyrir sumarið, enda stutt í
mót, og skellum okkur svo á Yello og horfum á Eurovision þar. Mæli
með að fólk kíki þangað, verður pottþétt hörkustemmari. Þess má
geta að einn meðlimur sveitarinnar hann Robbi var að vinna 50
Heineken bjóra í leik á Yello um daginn, þannig að Robbi ÞÚ
SPLÆSIR HOMMAHAUS!

'A föstudeginum förum við Víkingur svo saman vestur og hittum
þar Bigga, og sprengjum þakið af kofanum og djömmum með
Vestfirðingum, eins gott að það verði einhver wicked eftirpartí
y´all!! Síðan kemur maður
heim á lau og fer beint uppá Flass með þáttinn minn milli 18-21 að
vanda. Var í síðustu viku með kosningu á Besta eða skemmtilegasta
skemmtistaðnum á klakanum, og var það Pravda sem sigraði þá
kosningu með yfirburðum. Greinilega mikill söknuður af þeim stað.
Það var virkilega góð þáttaka og ég ætla að endurtaka leikinn á
laugardaginn, nema það að nú verður kosið um leiðinlegasta
skemmtistaðinn hehe, þannig að ekki láta ykkar eftir liggja,
bjallið í mig á lau í 5885500 og gefið ykkar atkvæði, aiight ! Um
kvöldið er svo Beerfest partýið á Trix málið, það gæti orðið ansi
hressandi..!
"ITS THE GREATEST BEER IN ALL DA
WORRRRLD"
-DAS BOOT! 
 
Allskonar bjórkeppnir í anda Beerfest myndarinnar, sem mun
einnig rúlla á skjánum á meðan, og ég man bara þegar ég og 'Oli
Geir skelltum okkur saman í bíó á þriðjudegi á þessa mynd, við
urðum svooooo þyrstir maður úffff. Enda fór ég heim í opnaði mér
nokkra kalda, enda ekki annað hægt hehe. Þetta verður massastuð, og
ég mun eflaust gefa einhver nöfn á gestalista á Flass 104,5 á
laugardaginn so stay tuned peepz.
Jæja ég vona að þið hafið nennt að eyða , well ekki eyða heldur
nota nokkrar mínútur í að lesa þetta hérna hehe, og vonandi eruð
þið öll í jafngóðu sumarskapi og ég akkurat núna,, eruði að sjá
sólina... úúúújeeee!! Blue Lagoon baby 
Hey já eitt að lokum, ég á afmæli 24.maí næstkomandi og er víst
orðinn alveg hundgamall, en ég hélt ekki uppá stórafmælið í fyrra
þannig að ég ætla að bæta það upp í ár, 25+1 hehe, og ætla að
halda massive party núna einhvern tímann í lok maí/byrjun júní,
þarf að reyna að finna hentugan tíma. En ef að þið þekkið mig
og teljið ykkur vera vini mína þá er ykkur boðið, það er ekki
flóknara en það! 'Eg læt ykkur vita þegar nær dregur hvenær
og hvernig þetta allt saman verður,, en þetta verður fresh, það er
klárt mál 

»
26.04.2007 18:04:34 / drummer
Vá eruði að ná því hversu fljótt þetta ár er búð að líða,, össs!
Dagarnir alveg hreint þjóta hérna áfram og sumarið bara á næsta
leyti. Það er ekki langt síðan ég var í Eyjum með félögum mínum um
áramótin eða maður lá góður á því í hengirúmi á Global Gathering í
Englandi,, its seems like last week! hehe... en þetta virðist vera
kosturinn við það að vinna bara um helgar,, well kostur og ekki
kostur,, mér finnst þetta ekkert endilega neitt æðislega gaman hvað
allt líður fljótt.. 'Eg meina afmælið mitt er á næsta leyti
(24.maí) og ekki langt síðan að ég ákvað að halda ekki uppá afmælið
mitt í fyrra, en þá varð ég 25 ára og hefði það verið kjörið, en ég
ætla að halda uppá það í sumar,, en hvenær hef ég ekki hugmynd um!
Það eru fkn allir að halda uppá mig afmælin sín núna í maí og
byrjun júní, og svo endalaust af partýum og klúbbakvöldum, þannig
að það er frekar erfitt að koma þessu fyrir.. Ætli ég haldi þetta
ekki bara þriðjudaginn 22. maí eða eitthvað! haha..
Það er helvíti sniðugur leikur í gangi inná heimasíðunni hjá
skemmtistaðnum Yello, www.yello.is, en þar er smá Eurovision leikur
i gangi og veglegir vinningar i boði, 10 Heineken fötur með 5
bjórum í hverri, ekki amalegt það. Það eru 3 spurningar þarna á
síðunni og tengjast Yello og Eurovision,, þannig að smellið ykkur
þarna inn og sprautið ykkur á þessu,, já ég sagði sprautið ykkur!
hehe.. check it www.yello.is Helgi Valur spilar svo og syngur af
sinni alkunnu snilld í kvöld, einn allrabesti labrador landsins,
hefur sérstöðu í þessum bransa. Gott með þig HELGI!

Damn maður ég stökk heim til ömmu rétt áðan og ætlaði að fara að
prenta út hjá henni slatta af tracklistum fyrir DJ möppuna mína, en
þegar ég fór í tölvuna hjá henni þá lét lyklaborðið öllum illum
látum og engu líkara en að besti vinur barnanna hans Satan sjálfur
hefði komist inní lyklaborðið og verið að skemmta sér! En amma
snillingurinn, hún var með straubrettið sitt rétt fyrir ofan
tölvuna og straujárnið þar oná,, það lak svo hressilega úr
straujárninu ofaní lyklaborðið hellingur af vatni, og það var sko
gjörsamlega á floti! Seytlaði alveg í því vatnið og ég er búinn að
vera síðasta kortérið að hella úr því og reyna að þurrka
lyklaborðið.. GOTT MEÐ ÞIG AMMA! 
'Eg er að fara núna á morgun vestur á 'Isafjörð, en ég er að
fara að spila þar á lokaballi hjá Menntaskólanum á 'Isafirði. Já
maður hefur ekki komið vestur í einhver 3-4 ár, en uppeldisfaðir
minn býr þar ásamt fjölskyldu sinni, og svo á maður slatta af
félögum þarna síðan í den, og eitthvað frændfólk as well. Frændi
minn er sem sagt í nemendaráði þarna og hafði eitthvað heyrt af
kallinum þannig að hann vildi fá mig til þessa að spila og ég fékk
sweet deal þannig að það var ekki annað hægt en að slá til og taka
smá roadtrip svona í lok aprílmánaðar. Kem svo aftur suður á
laugardaginn og þá ætlum við félagarnir ásamt fjölmörgum að skella
okkur á Lokahóf KKÍ í Stapanum í Kef,, en Sálin verður þar að
spila. Þið vitið öll mitt álit á Sálinni,, það fara allir á
Sálarböll og það er svaka stuð þar og sona,, en ég loka bara
eyrunum þegar inn er komið og spái lítið sem ekkert í því sem er
verið að spila,, heldur er þetta bara svo kjörin vettvangur til að
rugla í endalaust af liði, klósettspjallið alltaf klassískt hehe.
Svo eru nottla allir körfuboltadúddarnir og skvísurnar þarna þannig
að myndast oft helvíti skemmtilegt stemmning á þessum böllum.
Framundan hjá mér eru svo hellingur af afmælum og partíum sem
maður er að fara að spila í, það er greinilega eitthvað að berast
orðið með trommandi dj-inn hehe,, en það var massastuð í
Flasspartýinu síðustu helgi,, geggjuð mæting í bæði partíin, og við
fengum um 1100 manns inn samtals að mér
telst.

'Eg fékk það hrikalega erfiðara verkefni i seinna partíinu að
koma á eftir Adda Exos og strákunum í Plugg´d, en þeir 4deckuðu
(sem sagt spiluðu á 4spilara í einu) og náðu upp
tuddastemmningu. 'Eg var skiljanlega svona smá smeykur að
þurfa að koma á eftir þessu, plús það að þetta var í fyrsta skipti
sem ég spila í bænum þetta kvöld. En ég ákvað þá bara að taka
allt það flottasta og harðasta sem ég á til í möppunni minni, og
viti menn það svínvirkaði! Bongótromman gerði massíva
hluti, og svo notaði ég smá part af trommusettinu sem var fyrir á
sviðinu, þannig að úr varð geggjað show, og alveg drullugaman
þarna..! 

En ég ætla að klára að skrifa nokkra diska og skella mér svo á
Yello í kvöld með nokkrum skvísum og fá mér kaldan,, hafið það sem
allra best um helgina og ekki vera feimin við að commenta, aiiight
!
»
17.04.2007 18:00:25 / drummer
Jæja eruði að trúa þessu, það er að koma sumar..! Well,
allavega er sumardagurinn fyrsti framundan, en það er svona
lala veður úti, en það fer nú vonandi að rætast úr þessu svo maður
geti nú drifið sig í Lónið og farið að worka upp tanið hehe,, ekki
veitir af maður..
Eins og það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að þá er
komið nýtt lúkk á Minnsirkus, og það hefur verið að fara
misjafnlega í menn. Mér persónulega líkar ekki alveg nógu vel
við það,, erfiðara að lesa allt núna, það vantar alveg nöfnin
undir á notendum, sérð bara myndir af liðinu en engin nöfn
soldið böggandi. En þetta tekur alltaf smátíma að
smella saman, vonandi að þetta verði nú
betra. Eitt sem væri mjög
sniðugt væri að hafa þetta eins og á Myspace, þar sem að þú
sérð með einkaskeytin hvort það sé búið að lesa þau og svara
tilbaka, og eins væri gott að geta séð hvað maður sendi viðkomandi
aðila síðast.

'Eg fór útí Bónus að versla áðan og það var sko heldur
betur verslað! 'Eg verslaði fyrir ca 10 þús kall, sem er eins
og örugglega 25 þús kall liggur við í 10/11 hehe. Allavega þá
eru ísskápurinn, frystirinn og nammi/snakk skápurinn minn allir
stútfullir, og það er bara búin að vera veisla hérna síðan ég kom
heim í dag..! úúújeee, Joey likes to eat
Þegar ég var rölta þarna um Bónus þá heyrði ég eitthvað
lag í útvarpinu og það var eitthvað við það sem fór rosalega í
taugarnar á mér,, var bara ekki að meika það en náði ekki
alveg að pinpointa hvaða lag þetta væri. Svo kom
ég heim og var að glápa á tv og á Norræna þáttinn á Rúv um
Eurovision og þá fattaði ég að þetta er lagið okkar í ár, sem
Eiki Hauks syngur.
Okei mér er slétt sama þó þessir norrænu gagnrýnendur
hafi allir gefið laginu geggjaða einkunn,, þeir eru "frændur" okkar
og Eirikur er með þeim i þessum þætti. Ekki einu sinni
reyna að segja mér að austantjaldsþjóðirnar og þessar klíkur þarna
sem standa saman muni gefa okkur eitthvað mörg stig,, nei nei
ekki held ég það nú. Held því miður að við komumst
ekki uppúr undankeppninni í ár heldur,, en VONANDI
tekst það þó! 'Israelska lagið er töff
hehe, rokkað lag mixað við elektró og 'israelsk áhrif, ég er að
fílaða.
'Eg átti að vera að dj-ast í Eyjum næstkomandi helgi, en
það eru víst allnokkur kosningaböll í Eyjum næstu helgi
og frítt inná þau öll, þannig að eigandinn á Lundanum
staðnum sem ég átti að spila á vildi aðeins fresta þessu og
finna betri helgi,, þannig að ég læt ykkur Eyjamenn bara vita
þegar þetta skýrist betur
'A fimmtudaginn er árshátíð hjá Menntaskólanum Hraðbraut, og eru
það snillingarnir í Jagúar sem spila fyrir dansi og enginn annar en
Joey D sem sér um að kynda upp í liðinu á undan.. Þetta
verður þá fyrsta giggið mitt í bænum, og svo strax daginn
eftir á föstudagskvöldið verð ég ásamt helling af
snilldarplötusnúðum að spila á Gauknum,
já Gaukurinn að opna aftur.
FLASSPARTÍ á föstudaginn og massaline-up; Plugg´d,
Addi Exos, Wulfgang, Steindi Jr. Danni, Maggi, Víkingur og ég
sjálfur Joey D. Það verða tvö party,
13-16 ára og svo 16+. Það eru einhverjir sem eru að væla
undan aldrinum, hræddir um að eitthvað yngra lið reyni að koma sér
inní eldra partýið,, en maður er að heyra það að lið sem er í
kringum 16-17 ára aldurinn ætli að fara á yngra ballið, því þau
þekkja meira af yngra liði en eldra. Sem er bara gott mál,, menn
eiga ekki að láta þetta eitthvað stöðva sig, þeir sem eru eldri en
16 mæta bara í seinna partýið og skemmta mér massavel undir
geggjuðum tónum úrvalsplötusnúða, það er nú bara ekki flóknara en
svo..!

'Eg sé ykkur svo væntanlega velflest á Pendulum á morgun, svo
sér maður til með Gus Gus á laugardaginn.
En tékkið á www.flass.net og ef ykkur
langar að leigja úrvalsplötusnúða þá mæli eg með að þið kíkjið á
www.agent.is. Það
held ég nú!
»
11.04.2007 18:30:05 / drummer
Já það er nú meira hvað tíminn er fljótur að líða, það er kominn
næstum miður apríl og sumarið nálgast óðfluga. Það er bara
eins og það hafi verið bara í gær þegar ég var í Eyjum að
skemmta mér með félögum mínum um síðustu áramót. Tíminn alveg
hreint flýgur áfram, og mér finnst maður einhvern veginn ekki vera
að gera mikið á þessum tíma,, enda vinn ég eiginlega bara um
helgar,, dj-ast og með þáttinn á Flass 104,5. Held ég þurfi
nú að fara að fá mér eitthvað steady job á virkum dögum, eitthvað
svona 9-4 vinnu, en neita því ekki að það er rosalega gott að eiga
svona mikinn frítíma alltaf,, en bara verst hvað ég nýti hann
frekar illa.. Maður á auðvitað að reyna að taka hvern
dag og nýta hann sem best og líta á hann sem sinn síðasta og lifa
lífinu almennilega.
Mér var bent á eina bloggfærslu á netinu í gær, strákur sem væri að
tjá sig opinberlega um einelti sem hann varð fyrir þegar hann var
yngri, og það sló mig dáldið að sjá hver þetta var og að sjá svo
nafnið mitt þarna stórum stórum.
http://blog.central.is/glanninn?page=comments&id=2892657#co
En ég tek ofan af fyrir honum að þora að tjá sig um þetta,, og
ég gat ekki annað en sýnt þroska og eftirsjá, enda finnst mér þetta
ömurlegt og ég bað hann afsökunar á þessu á síðunni, enda það
minnsta sem ég get gert. Einelti á sér því miður alltof
oft stað á yngri stigum grunnskóla, og reyndar er það á öllum
stigum lífsins einnig.. Maður hefur orðið var við það á vinnustöðum
og á fleiri stöðum,, kæmi mér ekki óvart ef það viðgengist einnig á
elliheimilum landsins, svona grínlaust.
En útí annað,, ég sem hélt að maður yrði bara rólegur í
spilamennskunni í apríl mánuði,, en maður er frekar busy núna
seinni partinn í apríl. Það átti að vera núna á föstudaginn
Flasspartí á vegum Flass 104.5 á Gauknum,, en það frestast um eina
til tvær vikur. En það á eftir að verða kickass partí,, Plugg´d
krúið, Flass dj´s og fleira guddsjitt,, fylgist með
því..!
'Eg er að spila með Atla á Yello núna á lau, byrja allavega kvöldið
og svo tekur Atli við. Þann 19.apríl er ég svo að dj-ast
á árshátíð hjá Menntaskólanum Hraðbraut í bænum, og er ég að
hita upp fyrir hið frábæra funkband Jagúar, og verður það auðvitað
bara gaman, verð þarna með bongótrommuna í góðum gír og kem
liðinu í stuð fyrir Jagúarstrákana.
Helgina 20-21 apríl verð ég svo að spila í Eyjum á Lundanum, tek
roadtrip þangað með Nonna Infamous félaga mínum og hitti allt krúið
í Eyjum, og það á eftir að verða guddsjitt.
En já ég ætla nú að fara í smá naflaskoðun á næstunni, sjá
hvaða stefnu ég vill sjá líf mitt taka,, þetta er orðið dáldið
mikið svona endurtekningarrútina hjá mér,, þarf aðeins að hrista
upp í þessu

En vó ég fór í Lónið síðustu helgi eftir tæplega hálfs árs
fjarveru, sem er nottla fáranlegt, enda vann ég þarna á í þriðja ár
og var liggur við daglega í Lóninu. Alltof gott sko,, fer að
fara þarna aftur reglulega, ekki spurning sko. Miklar
breytingar í gangi þarna, og auðvitað alltaf æðislegt að hitta
liðið í Lóninu, frábært fólk.
Og já eitt að lokum,, kallinn er kominn aftur í rokkbransann,,
farinn að tromma með nokkrum strákum í Kef og byrjaður að spila
sveittan metal! Mikið djöfull er nú gott að fara að tromma
aftur á heilt sett,, ekki bara á minni elskulegu bongótrommu
hehe. Það er strax búið að bóka okkur á einhver gigg,
en þetta er bara svona að smyrjast saman hjá okkur,, en þetta er
svo fokkin gaman maður, luv it !
En ég ætla að skella mér í sturtu og fara að skrifa nokkra
guddsjitt diska,, hafið það sem allra best öll saman, og endilega
commentið
»
29.03.2007 20:56:01 / drummer
Djöfull er ég sáttur með veðrið núna, ógeðslega góður
fílingur að komast í mann, sólin farin að láta á sér kræla og
menn allir að léttast eftir nokkuð dökkan vetur.
Maður er farinn að plana sumarið og greinilegt að það eru allir að
komast í góðan gír.
'Eg tók einmitt til í gær og tók allsherjar hreingerningu á íbúðina
mína, og ekki sko veitti af..! Þetta var orðið eins og
blanda af fyrri og seinni heimstyrjöldinni, eða svona meira 'Irak
vs Víetnam fílingur,, alveg hellað hehe. En ég
bara taldi í og réðst til atlögu, og fékk góða hjálp frá
Thelmu neighbour og nú er íbúðin bara alveg glansandi fín, spikk og
spam! Líður ekkert smá vel inní henni núna,, well enn betur
en áður, og get núna með góðri samvisku dregið frá
gluggatjöldin hehe
-Kíkja í heimsókn,, gjössogvel!
Kíkti aðeins í bæinn áðan að vesenast og hitti á Innu vinkonu
mína og hún var að fá sér æðislegan hund,, svona lítinn
dúlluhvolp,, er af gerðinni Pug, svona lítill gaur eins og var í
Men in Black,, algjört rassgat. Er helvíti líkur Nelson
Mandela og fékk nafnið Nelson,, gott mál það 
Rólegur og svona kúruhundur,, gott með þig hvutti!
Yo, réttið upp hönd sem fóruð á Gus
Gus... Váá þetta var fkn wicked
kvöld! Reyndar alveg ógeðslega mikið af liði þarna inni,
sardínusdósarfílingurinn á tímabili,, en það rættist úr
þessu. 'Eg held ég myndi samt vilja sjá Gus Gus í Höllinni,,
þau hefðu farið létt með að fylla hana. Nýji diskurinn þeirra
"Forever" er geggjaður og er lagið Moss með Daníel 'Agúst komið í
spilun hjá okkur á Flass 104,5 og er eitt það heitasta á
stöðinni.
Talandi um Flass,, en þá erum við að gefa miða á Fedde Le
Grand sem verður á Broadway 4.apríl næstkomandi, og feikna stemmari
fyrir þvi að sjálfsögðu. 'Eg mun væntanlega gefa einhverja
miða í þættinum hjá mér á laugardaginn milli 18-21 þannig að
þið fylgist bara vel með elskurnar
En í kvöld er fimmtudagskvöld og ég er að fara að dj-ast á Trix í
Keflavík, og lofa ég ykkur eðaltónum að vanda. Það er frí
hjá öllum í FS á morgun, starfshlaupið í gangi
þannig að það eru allir víst að fara útá lífið í kvöld.
Sá kaldi verður á slikk, þannig að Trix er málið 2nite
y´all!
Það verður einmitt eftirpartí eftir Ungfrú Suðurnes keppnina annað
kvöld á Trix, og get ég reddað ykkur á gestalista, eða þið talið
bara við 'Ola Geir. Annars er það bara 500 kall inn eftir 01
að mig minnir.
'Eg sem ætlaði að taka rólega helgi,, fokk me,, ekki hægt
sko. En þar sem fallegar stelpur eru, þar verður
Joey D víst að kíkja við hehe  En
laugardagurinn verður easy, það er alveg pottþétt mál! Enda
löng páskahelgi framundan í næstu viku.
En ég er farinn að rokka með nýja bandinu mínu,, já kallinn kominn
í metalinn aftur, og svo dj-ast í kvöld, skemmtileg blanda það
Hva segið þið svo,, eru ekki allir í stuði ?!
»
23.03.2007 03:38:14 / drummer
Yesssör, það er dottin enn ein helgin í hús og Drummerinn
ferskur að vanda!
Sit hérna heima hjá vinkonu minni að chilla bara,, stór ferð
framundan á Akureyri á morgun föstudag, förum norður ég, 'Oli og
Andri Ramirez á vegum www.agent.is, og ætlum að halda
massaklúbbakvöld á skemmtistaðnum Capone annað kvöld og það verður
án efa massastemmari, enda Akureyringar þekktir fyrir góða
klúbbamenningu og þegar ég fór þarna síðast fyrir ca 2 mánuðum
síðan að spila var alveg wicked! Þannig að ég býst ekki
við neinu öðru en guddsjitti á morgun, úje
Við
ætlum eins og áður segir að keyra þangað uppeftir en ég ætla svo að
taka hoppflug heim á lau, enda þarf ég að vera kominn uppá Flass kl
18 á lau, ekki séns að ég nenni að keyra alla þessa leið heim
hugsanlega í ágætri þynnku hehe..
Já váá hvað maður er að fara eitthvað í sumar, og þar er
það Global Gathering sem stendur hæst á toppi, enda ekkert
nema geðsjúk hátíð! Spánn og 'Italía heilla
einnig, og kæmi mér ekkert á óvart ef maður myndi kíkja út í
helgarferð til London eða eitthvað álíka. 'Eg hlakka allavega
endalaust til sumarsins, það verður wicked. Skil samt
ekki þennan snjó sem er í gangi núna,, er ekki að koma apríl..
halló! En sumarið verður geggjað,, ekki smurning beibí 

'A laugardaginn erum við að tala um geðsjúkt kvöld á Nasa en
engir aðrir en snillingar 'Islands krakkarnir í Gus Gus verða
þar með útgáfupartí tileinkað nýja disknum sínum Forever, sem er í
einu orði sagt ridicilous! Love that shit sko, og það er að
sjálfsögðu löngu uppselt í forsölu og bara selt við hurð. 'Eg
er að spá í að hafa þáttinn minn á Flass á lau. tribute til Gus Gus
og reyna að spila eitthvað af nýju plötunni í bland við old school
shit frá Gus Gus. Svo er það alveg spurning hvort ég
muni gefa örfáa miða á tónleikana með Gus Gus á Nasa á
laugardagskvöldið í þættinum,, þannig að það er klárlega málið að
tékka á Joey D á Flass 104,5 á lau milli 18-21, það held ég
nú..!
Heyrðu ég er farinn í bælið, stór helgi framundan,, allir
Akureyingar og nærsveitamenn látið sjá ykkur á Capone
annað kvöld föstudagskvöld, verður wicked shit ! Flass
104,5 á lau milli 18-21, getið hlustað á netinu á www.flass.net Tékkið einnig
á www.agent.is
Annars bara elska ég ykkur öll, elskið friðinn og njótið
lífsins,, til þess er það nú..! 
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|